Velkomið að hafa samband og við mælum okkur mót eða sendið fyrirspurnir og ég sendi ljósmyndir af því sem til er.
Hrönn sími 822-3584 eða hronn61@gmail.com
Bænapúðar
Bænapúðarnir eru handmálaðir með þrykktum bænum.
Yndislegt bómullarsatín sem hægt er að þvo oft.
Innifalið í verði er nafn barnsins og getur það komið síðar.
Kr: 15.500
Sérbæn eða vísa kostar 1.000.- aukalega
Vinsælustu bænirnar eru:
Vertu nú yfir og allt um kring...... og
Leiddu mína litlu hendi........
Sængurver ofl
Handmáluðu sængurverin fást í ungbarnastærð og millistærð.
Litirnir eru mjög þvottþolnir og mála ég á bómullarpoplín sem heldur sér mjög vel í mörg, mörg ár. Sum verin hafa verið notuð fyrir 2-3 börn og það sést ekki á þeim.
Heilmáluð sængurver fást eftir sérpöntun.
Verð
Ungbarnaver 19.800 með máluðu milliverki, nafni barnsis og bæn eða texta.
Millistærð 25,800 með máluðu milliverki, nafni barnsins og bæn eða texta
Hjónasængurver
Hjónalínan byggir á hjónamunstri Hrannar þar sem konan er með mjúkar línur og karlinn með beinar línur, grunneðli karla og kvenna. (við konurnar erum mjúkar en karlarnir svolítið kassalaga ;)
Sængurver eru úr besta fáanleg 100% bómullarsatíni.
Hægt er að sérpanta rúmföt eftir máli.
Hjónaverin kosta frá 85.000 eftir því hve mikið þrykkt/málað er.
Einfalt þrykk: 85.000
Þrykkt milliverk: 95.000
Þrykkt og málað: 110.000
Staðsetning
Textíll ehf, Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður
Ásholt 30, 105 Reykjavik, Iceland
Hringið áður svo við getum mælt okkur mót, ég er ekki alltaf heima, best að hringja eða senda tölvupóst
sími: 8223584 eða hronn61@gmail.com