Textíll ehf.
Textíll selur íslenska hönnun eftir Hrönn Vilhelmsdóttur textílhönnuð sem hefur hannað og unnið sængurver, bænapúða, rúmkanta, rúmteppi og ýmislegt fleira fyrir börnin frá 1990. Litrík og falleg heildstæð hönnun sem þúsundir barna um allan heim njóta. Nafn barnsins og jafnvel sérbæn gerir hvern púða einstakan og börnin taka oft miklu ástfóstri við púðana sína eða sængurverasettin.
Hrönn hefur einnig hannað línu fyrir hjónaherbergið sem hægt er að sérpanta.
Unnið er einungis úr hágæða bómull þegar sængurver og púðar eru sem þurfa að þola mikinn þvott.
Skírnarkjólar Hrannar eru úr 100% silki með þrykktum bænum t.d. Vertu nú yfir....
Góður lager af bænapúðum og sængurverum eru heima hjá hönnuði, Ásholti 30, 105 Reykjavík. Einnig vinnur hún eftir séróskum viðskiptavina. Hægt er að hafa samband í síma 8223584 eða senda tölvupóst á hronn61@gmail.com því það er ágætt úrval af bænapúðum og sængurverum og hægt að merkja púða og ver með nafni barnsins. Það er bara að hringja og við finnum út hvað hægt er að gera.
Kær kveðja, Hrönn textílhönnuður
Hrönn hefur unnið að ýmsum sérverkefnum í textíl ásamt því að taka þátt í mörgum samsýningum tengdum Textílfélaginu, Hönnunarmars, Handverki og hönnun ofl.
Hafið samband
Best er að hringja í síma 822-3584 eða senda tölvupóst á hronn61@gmail.com